Notaðu Google Slides til að birta áhrifaríkar frásagnir
Búðu til kynningar, kynntu þær og notaðu þær með öðrum á netinu í rauntíma í hvaða tæki sem er.
Jeffery Clark
T h i s c h a r t h e l p s b r i d g i n g t h e s t o r y !
E s t i m a t e d b u d g e t
Búðu til glæsilegar kynningar í samstarfi við aðra
Uppfærðu skyggnurnar með því að deila og gera breytingar í rauntíma á einfaldan hátt. Notaðu ummæli og úthlutaðu aðgerðaratriðum til efla samvinnuna.
Kynntu skyggnur af öryggi
Nýttu þér eiginleika Skyggna eins og skjámynd fyrirlesara, minnispunkta fyrirlesara og skjátexta í rauntíma til að kynna hugmyndir á einfaldan hátt. Þú getur einnig haldið kynningu í Google Meet myndsímtölum beint úr Skyggnum.
Hnökralaus tenging við önnur Google forrit sem þú notar
Slides er tengt við önnur Google forrit á úthugsaðan hátt til að spara þér tíma. Felldu inn myndrit úr Google Sheets eða svaraðu ummælum beint úr Gmail. Einnig er hægt að leita á vefnum og á Google Drive að viðeigandi efni og myndum beint úr Slides.
Færðu samvinnuna á næsta stig og nýttu þér snjalltækni í PowerPoint skrám
Þú getur auðveldlega gert breytingar á Microsoft PowerPoint kynningum á netinu án þess að þurfa að umbreyta skránum. Þú getur einnig notað ítarlega samvinnu- og hjálpareiginleika Skyggna á borð við aðgerðaratriði og snjallskrif.
Vertu með nýjasta efnið þegar þú vinnur í því
Í Skyggnum geta allir unnið í nýjustu útgáfu hverrar kynningar. Breytingar eru þar að auki vistaðar sjálfkrafa í útgáfuferlinum og því er auðvelt að sjá eða afturkalla breytingar.
Nýttu þér innbyggða snjalleiginleika og búðu til skyggnur á skjótari hátt
Gagnlegir eiginleikar á borð við snjallskrif og sjálfvirka leiðréttingu auðvelda þér að búa til skyggnur hraðar með færri villum.
Komdu hlutunum í verk, jafnvel án nettengingar
Þú hefur ávallt aðgang að Skyggnum, jafnvel án nettengingar, og getur því opnað, búið til og breytt skjölum hvar sem þú ert.
Öryggi, reglufylgni og persónuvernd
Öryggismiðuð hönnun
Við notum háþróaða öryggiseiginleika sem eru sérhannaðir til þess að tryggja öryggi gagna, þ.m.t. fyrsta flokks vörn gegn spilliforritum. Skyggnur eru í skýinu sem gerir staðbundnar skrár óþarfar og lágmarkar áhættu fyrir tækin þín.
Dulkóðun við flutning og geymslu
Allar skrár sem er hlaðið upp á Google Drive eða eru búnar til í Skyggnum eru dulkóðaðar við flutning og geymslu.
Stuðningur við reglufylgni
Vörurnar okkar, þar á meðal Skyggnur, þurfa reglulega að gangast undir óháð mat á öryggi, persónuvernd og eftirliti með reglufylgni.
Hönnun sem tekur mið af persónuvernd
Skyggnur fylgja sömu ströngu reglum um persónuvernd og gagnavernd og önnur fyrirtækjaþjónusta Google Cloud.
Þú hefur stjórn á gögnunum þínum.
Við munum aldrei nota efni Skyggna í auglýsingaskyni.
Við munum aldrei selja persónuupplýsingar þínar til þriðju aðila.
Finndu áskriftina sem hentar þér best
Google skyggnur eru hluti af Google Workspace
Hver áskrift felur í sér
Til einkanota (gjaldfrjálst) |
Business Standard$12 USD
á notanda á mánuði, skuldbinding í 1 ár info Eða $14.40 á notanda á mánuði þegar innheimt er mánaðarlega
|
|
---|---|---|
Skjöl, Töflureiknar, Skyggnur, Eyðublöð
sköpun efnis |
done |
done |
Drive
Örugg skýjageymsla |
15 GB á notanda |
2 TB á notanda |
Samnýtt drif fyrir starfsfólk |
remove |
done |
Gmail
Öruggur tölvupóstur |
done |
done |
Sérsniðinn tölvupóstur fyrir fyrirtæki |
remove |
done |
Meet
Hljóð- og myndfundir |
100 þátttakendur |
150 þátttakendur |
Upptökur af fundum vistaðar á Drive |
remove |
done |
Stjórnandi
Miðlæg stjórnun |
remove |
done |
Stýringar fyrir öryggisreglur hópa |
remove |
done |
Notendaþjónusta |
Sjálfsafgreiðsla á netinu og umræðusvæði |
Stuðningur á netinu allan sólarhringinn, alla daga og umræðusvæði |
Sparaðu tíma með sniðmátum
Þú getur valið á milli ólíkra gerða kynninga, skýrslna og annarra faglegra sniðmáta og hafist handa á skjótan hátt.
Tillaga
Raundæmi
Myndaalbúm
Framsöguerindi
Tillaga
Raundæmi
Myndaalbúm
Framsöguerindi
Opnaðu sniðmátasafn fyrir Skyggnur til að fá frekari upplýsingar.